Um 100km

Félagið var stofnað 26. september, 2004 í Sundlaug Vesturbæjar að loknu Þingstaðahlaupi. Tilgangurinn er að efla samstöðu meðal langhlaupara á Íslandi sem fást við ofurmaraþon í “flokki lengri vegalengda”, þ.e.  100 km og lengra sem og að stuðla að vaxandi þátttöku í slíkum hlaupum. Gildir meðlimir í félaginu eru allir þeir Íslendingar sem lokið hafa  þátttöku í viðurkenndu, opinberu 100 km keppnishlaupi, eða lengra hlaupi, þar sem hlaupið er í einum áfanga.

Gamla vefsíðan okkar frá Aðalritaranum og stofnanda Ágúst Kvaran

Nánari upplýsingar af gömlu vefsíðu Ágústs Kvarans (.pdf skrá)

Nánari upplýsingar af gömlu vefsíðu Félags 100km hlaupara á Íslandi (.pdf skrá)

Þrjú skilyrði fyrir inngöngu í félagið

 

  1. Gildir meðlimir í félaginu eru allir þeir Íslendingar sem lokið hafa  þátttöku í viðurkenndu, opinberu 100 km keppnishlaupi, eða lengra hlaupi, þar sem hlaupið er í einum áfanga.
  2. Félagi þarf að greiða félagsgjald.
  3. Félagi þarf að mæta á aðalfund og veita 100 km húfunni viðtöku við sérstaka athöfn.

Smelltu á “Sækja um” hnappinn hér fyrir neðan til að fylla út umsóknarform.

 

Stofnendur

Þessir heiðursmenn stofnuðu Félag 100 km hlaupara á Íslandi árið 2004.

Stofnfélagi númer 1: Ágúst Kvaran (1952)

Stofnfélagi númer 2: Sigurður Gunnsteinsson (1941)

Stofnfélagi númer 3: Svanur Bragason (1945-2018)

Stofnfélagi númer 4: Pétur Reimarsson (1951)

Stofnfélagi númer 5: Gunnlaugur Júlíusson (1952)

    Félagatal

    Smelltu á skjal til að stækka

    Hafa samband

    Til að hafa samband við Félag 100 km hlaupara á Íslandi er hægt að fylla út formið hér að neðan.

    2 + 11 =